Auglýsing

Undirsíđukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Vigtun

30. júlí 2008 klukkan 09:31
1,6 niður þessa vikuna, þrátt fyrir þónokkrar harðsperrur Hlæjandi

Gott að vera komin af stað í létting aftur - var orðin frekar pirruð á mér að vera ýmist að standa í stað eða fara upp!!

Matarlega séð var vikan rosa góð og ég var dugleg að mæta í ræktina - nema þegar ég var sem verst af kvefinu en ég er orðin alveg góð af því núna svo nú er bara að halda ótrauð áfram. Fór til vinkonu minnar í gærkvöldi og hún bauð uppá uppáhaldsísinn minn (vissi ekki að ég væri byrjuð á danska aftur) - en ég fékk mér bara kaffi til að skemma ekki fyrir í vigtuninni í dag - sé sko ekki eftir því núna.
Hérinn
5 athugasemdir

Í dag

28. júlí 2008 klukkan 22:47
Dagurinn í dag var 100% danskur + fór í ræktina. Þá er ég sem sagt búin að ná heilli viku bara nokkuð góðri - ánægð með það Hlæjandi

Fór í svona Gravity tíma í dag - eins konar lyftingarbekkir þar sem maður vinnur bara með eigin þyngd, engin lóð eða neitt. (og ég á sko nóg af eigin þyngdGlottandi)  Rosa fínir tímar - held að þeir myndu henta mér hrikalega vel þar sem mér finnst alveg hræðilega leiðinlegt í tækjasalnum!! Ef þessir tímar verða í boði áfram mun ég örugglega reyna að komast í þá tvisvar í viku á móti brennslutímum.

P.s. vantar ennþá um oetker búðinginn ef einhver veit.

Í góđum gír :)

27. júlí 2008 klukkan 18:15
Frábær dagur hjá mér - svaf út og fékk mér svo æðislegan brunch rétt fyrir hádegið með ristuðu brauði, reyktum laxi, kotasælu, svörtum pipar, rucola og fullt af grænmeti náttúrulega. Síðan þá er ég búin að vera hér kófsveitt að mála hjá mér baðherbergið og þrífa - loksins, loksins, baðherbergið búið að vera í rúst síðan í apríl!!
Hlakka ekkert smá til að geta hengt upp hillur og spegla aftur og komið öllu baðdótinu á sinn stað Hlæjandi

Nú er það bara tvöfaldur espresso og smá pása áður en ég held áfram - hráefnið í kvöldmatinn tilbúið inní ísskáp svo dagurinn verður alveg pottþétt 100%

Bara eitt vandamál - finn ekki DDV bókina mína - man einhver ykkar hvernig oetker búðingurinn telur???

Report

26. júlí 2008 klukkan 22:48
Jæja það hafðist hjá mér - 100% dagur í dag - meira að segja fjörmjólk í Latte-inu mínu Hlæjandi

Annars bara leti í dag - held það séu bara nákvæmlega allir sem ég þekki annað hvort í útlöndum eða út úr bænum!!
Hérinn
3 athugasemdir

Enn međ kvef - en laus viđ rugluna :)

25. júlí 2008 klukkan 22:44
Var ógeðslega kvefuð, slöpp og orkulaus þegar ég kom heim úr vinnunni þannig að ég lagði mig bara í góða veðrinu.
Hafði ekki orku í að elda mér kvöldmat (strákurinn ekki heima) þannig að kvöldmaturinn var eiginlega bara meira eins og hádegismatur, auka brauð fyrir ávöxt og kotasæla og eitthvað en gat ekki klárað grænmetisskammtinn.
Síðan þá er ég bara búin að vera hálfsofandi í sófanum. Á enn eftir ávexti og eitthvað af mjólkurskammtinum en held ég komi því ekki niður núna.

Dagurinn var sem sagt ekki 100% í mataræðinu og ég fór ekki í ræktina Fýldur

Ætla bara að fara inn í rúm og halda áfram að sofa og vona að ég vakni bara eiturhress á morgun! Hlæjandi

Međ rugluna........ og kvef :(

25. júlí 2008 klukkan 00:00
Mataræðið fínt í dag, klikkaði reyndar aðeins á fituskammtinum og fékk of mikið - en það gæti nú verið verra. Fór líka í ræktina en er orðinn full af kvefi og finn hvorki lykt né bragð - ekki alveg pantað sko!

Til að setja smá pressu á mig þessa fyrstu daga sem ég er á danska aftur ætla ég að skrifa hér inn hvernig ég hef staðið mig í mataræði og hreyfingu á hverjum degi. Fæ þá skömm í hattinn frá ykkur ef ég er ekki að standa mig.

Held reyndar að heilasellurnar séu með einhverja pest líka - sennilega snert af ruglunni. Helti mér uppá kaffi áðan og í stað þess að hella því á kaffibrúsann helti ég því öllu í vaskinn!!! Fæ því ekkert kaffi í kvöld, legg ekki í að hella uppá aftur, aldrei að vita hvar þar endar.
Fór svo að smyrja nesti fyrir strákinn - skar niður peru og þurfti náttúrulega að snúa því við og setja afskurðinn í poka og henda perunni sjálfri í ruslið og til að kóróna allt saman fór ég með þvottahrúgu til að seja í vélina fyrr í kvöld en þegar ég ætlaði að fara að hengja upp þvottinn komst ég að því að ég hafði sett allt saman í þurrkarann - óþvegið !! Hvað er eiginlega í gangi með mig !??? Hissa 

Best ég komi mér bara í bælið áður en ég fer mér að voða Hlæjandi
Hérinn
2 athugasemdir

Ákvörđun :)

24. júlí 2008 klukkan 00:02

Ég er búin að ákveða að fylgja danska aftur og sjá hvort mér gengur betur að sætta mig við hann núna Ullandi - en þó með einni undantekningu - ég fæ mér einn Latte af og til þegar mig langar á kvöldin. Elska kaffi Latte svo það verður mitt "nammi" á næstunni Hlæjandi 
Tek mjólkina af mjólkurskammtinum - en "svindlið" felst í því að ég nota fituríkari mjólk en leyfilegt er á danska - ekkert varið í Latte með fjörmjólk eða undanrennu!

Nú eru 23 vigtanir til áramóta og fyrir lok þessa árs ætla ég að vera búin að missa 15 kíló - það gera að meðaltali 650 gr á viku sem á alveg að vera gerlegt.

Einnig ætla ég að halda rútínunni minni í ræktinni, þ.e. mæta í hádeginu þrjá daga, eftir vinnu tvo daga og á laugardögum þegar ég kemst. Hef ekki áhyggjur af að klikka mikið á því af því að ræktin er nú þegar í rútínu hjá mér og mér líður bara hálf illa þegar ég mæti ekki.

Dagurinn í dag er búinn að vera 100% danskur + einn hrikalega góður heimagerður Latte.

Hef trú á að mér takist betur að halda mig á beinu brautinni núna þegar allt fer að komast í fastar skorður aftur í vinnu og styttist í að strákurinn byrji aftur í skólanum.

Hérinn
4 athugasemdir

Vigtun

23. júlí 2008 klukkan 09:59
Jæja 1,4 kíló kvöddu núna þrátt fyrir að ég sé með hressilegar harðsperrur eftir ræktina í gær og fyrradag.
Finn enn fyrir vökvasöfnun þrátt fyrir að hafa drukkið engifer í gær og örugglega pissað 15 sinnum!! Svo var ég líka búin að skemma verulega fyrir sjálfri mér með bjánalegu mataræði áður en ég fór í gönguna - en nú verður tekið á því svo vonandi fæ ég góða tölu næst líka Brosandi

Ætla að finna mér tíma í vikunni til að setja mér ný markmið og koma mér á beinu brautina aftur - ef ekki verð ég fljótlega búin að bæta á mig öllu sem ég er búin að missa á árinu - sem er nú í sjálfu sér ekki mikið en samt.

Veit að ég má heldur ekki horfa bara á vigtina því þrátt fyrir að hafa ekki verið að léttast mikið á fyrri helmingi þessa árs hefur ummálið verið að minnka eftir því sem vöðvarnir styrkjast í ræktinni.

Anyway - vona að ykkur hafi gengið vel þessa vikuna. Tek bloggrúntinn á eftir Hlæjandi
Hérinn
4 athugasemdir

Komin til byggđa

20. júlí 2008 klukkan 22:02

Laugavegsgangan var í alla staði frábær Hlæjandi skemmtilegt fólk og frábært veður alla dagana. Rúmlega 50 km lagðir að baki á fjórum dögum. Dagleiðirnar voru frá rúmum 4 tímum uppí 7 tíma.
Fyrsti dagurinn frá Landmannalaugum yfir í Hrafntinnusker fannst mér erfiðastur, enda mikið uppá við en þar fannst mér landslagið jafnframt stórfenglegast.
Fyrstu tvo dagana kom rigning um kvöldið en þó ekki fyrr en við vorum komin í skálana svo regnfötin voru aldrei dregin upp, stuttbuxur og bolur dugði alla dagana - ótrúleg heppni að fá alla dagana góða svona uppá hálendinu.

Bólgnar tær, blöðrur og aumir vöðvar létu alveg á sér kræla en þó í minna mæli en ég átti von á og óneitanlega var þetta frekar erfitt á köflum en það bliknar allt saman í samanburði við stórkostlegt útsýni, frábæran félagsskap og ánægju og stolt yfir að komast þetta alla leið!! Brosandi

Við erum þegar farin að huga að skipulagningu ferðar fyrir næsta sumar!!

En mikið rosalega var líka gott að koma heim - hlakka svooooo til að leggjast uppí og sofa í mínu eigin rúmi.

Stefnan er svo á ræktina í hádeginu á morgun ef táblöðrur koma ekki í veg fyrir að ég geti verið í skóm Ullandi

Hérinn
6 athugasemdir

Ferđalög

15. júlí 2008 klukkan 21:23
Jæja, þá er ferðalaginu í heimahagana lokið og næsta ferðalag tekur við á morgun. Mér finnst ég ekki gera annað þessa dagana en pakka ofaní og uppúr töskum Hlæjandi

Rosa fínt fyrir austan eins og alltaf, göngur, bíltúrar og afslappelsi eins og það gerist best. Mataræðið ekki kannski alveg uppá það besta en þó mun betra en oft þegar ég er fyrir austan.
Ætla á vigtina í fyrramálið áður en ég legg af stað í Landmannalaugar og síðan aftur á mánudag þegar gangan er búin, verður gaman að sjá hvaða áhrif fjögurra daga ganga hefur á vigtina.
Set samt tölur örugglega ekki inn fyrr en ég kem til baka því það er mæting í rútuna 7:30 í fyrramálið svo ég á ekki von á að ég bloggi áður en ég legg í'ann á morgun.

Allt að verða tilbúið til ferðarinnar, bara eftir að spreyja skóna og fara í sturtu, svo er það bara snemma í háttinn.

Hlakka til að leggja af stað á morgun - er vel stemmd og viss um að ég fer þessa rúmlega 50 km eins og ekkert sé - wish me luck!! Ullandi
Hérinn
1 athugasemd

Vigtin

11. júlí 2008 klukkan 11:55

Tvö kíló upp sagði vigtin Fýldur Alls ekki skemmtileg tala en hún kemur mér samt ekki á óvart. Hreyfði mig lítið sem ekkert meðan ég var úti og maturinn var brasaður breskur matur. Ekki það besta fyrir vigtina og ég finn líka fyrir vökvasöfnun þessa dagana.

En nú er það bara gönguundirbúningur næstu fimm daga og svo gangan sjálf í fjóra daga - hlýt að brenna einhverju í þessum göngum öllum Hlæjandi

Mæting í flug austur eftir korter svo ég læt þetta duga í bili og dreg gönguskóna upp um leið og ég kem á áfangastað!!

Hérinn
1 athugasemd

Raus

09. júlí 2008 klukkan 18:13
Ég hef ekki lagt í að fara á vigtina ennþá eftir að ég kom að utan Skömmustulegur Veit alveg að ég hef þyngst eitthvað. Ekki beint hollustufæði sem var í boði þarna úti plús grillmatur og bjór í útilegu um helgina og síðan er ég búin að vera á kafi í vinnu og varla gefið mér tíma til að borða - og þegar ég hef gefið mér tíma til þess þá er það yfirleitt brauð með osti - ekki gott!!! Ætli ég láti mig nú samt ekki hafa það að skella mér á hana í fyrramálið því svo verð ég ekkert heima fyrr en eftir tæpar tvær vikur.

En nú styttist óðum í gönguna, fór í dag og keypti mér úlpu, buxur og sokka fyrir ferðina. Held ég hafi bara gert góð kaup, helmings afsláttur af öllu í Regatta.  Hreyfingin hjá mér þessa dagana felst aðallega í að finna mér smá tíma til að ganga - en ertir morgundaginn er ég komin í frí svo þá verður gengið og gengið og gengið á hverjum degi fram að göngunni og þar verður náttúrulega áfram gengið og gengið á hverjum degi í fjóra daga.  Síðan er bara að skella sér beint í rútínuna í ræktinni eftir það.

Missti mig pínkulítið í UK og keypti mér þar hvorki meira né minna en NÍU stykku buxur!! Líka nokkra boli, skyrtu og skó......
En mér til málsbóta þá var ég orðin alveg buxnalaus og vinn þannig vinnu að ég þarf að vera þokkalega snyrtilega klædd - rosa gaman að kaupa svona mikið af fötum í einu Hlæjandi 
(Vonandi verða þær samt of stórar á mig fljótlega - hitti á útsölur svo þrátt fyrir að þetta hljómi rosa mikið þá kostaði þetta allt ekki nema um 30 þús þrátt fyrir verulega óhagstætt gengi á pundinu)

Læt þetta duga í bili og reyni að skella inn (hræðilegum) tölum á morgun. Brosandi
Hérinn
1 athugasemd

Komin heim

06. júlí 2008 klukkan 23:46
Jæja, þá er ég komin heim af vikunámskeiði í UK, það var frekar strembið - kennt alla dag til 6-7 á kvöldin og svo sameiginlegur matur á kvöldin þannig að dagskrá var sjaldnast búin fyrr en um 9. Nema á fimmtudaginn kláruðum við fyrir sex sem var fínt því mallið í bænum var opið til 9 það kvöld svo kvöldmat svar sleppt og farið í smá verslunarleiðangur Hlæjandi
Kom svo heim seint á föstudagskvöld og beint í útilegu á laugardagsmorgun. Rosa gaman og strákurinn alsæll að fá að hafa mömmu svona út af fyrir sig alla helgina.  Mataræði og hreyfing hefur sem sagt setið allverulega á hakanum undanfarna rúma viku og ég þori ekki fyrir mitt litla líf að fara á vigtina - finn að ég hef eitthvað bætt á mig og langar ekki beint að vita hversu miklu!!

Á morgun er það svo bara vinna og ræktin en svo í frí í lok vikunnar.
Hérinn
1 athugasemd