17. ágúst 2009 klukkan 16:55
...kominn mánudagur!!!?? Hvert fór síðasta vika ?
Held að síðasta vika hafi bara aldrei verið því núna á föstudaginn var ég upp á gramm það sama og síðasta föstudag!
Ekki mætti ég heldur í ræktina!
Meiri aumingjaskapurinn!!!
Hérinn
10. ágúst 2009 klukkan 00:50
Held ég sé loks að losna við pestina þó með leiðinda hósta ennþá, hlakka til að komast aftur í vinnuna á morgun og vinna að því að koma lífinu í venjulega rútínu aftur. Búin að pakka niður í íþróttatöskuna, stefnan sett á ræktina á hádeginu á morgun.
Til að byrja með ætla ég í ræktina þrjú hádegi í viku og ganga þess á milli. Það verður gott að fá strákinn minn (og göngufélaga) heim aftur á föstudaginn, hann er ótrúlega duglegur að labba með mér þó hann sé ekki nema 7 ára 
Hérinn
08. ágúst 2009 klukkan 16:26
Jæja, við frænkur tókum ákvörðun um það á spjallinu í gærkvöldi að þetta líferni á okkur gengi náttúrulega ekki lengur, það er alveg hætt að vera fyndið hvað maður er endalaust "góð" við sjálfa sig.
Set góð innan gæsalappa því það er náttúrulega ekkert gott við að hanga hreyfingarlaus uppí sófa og safna enn meiri aukaforða utan á sig!!
Planið er einfalt: Borða skynsamlega, sleppa sælgæti og hreyfa sig á hverjum degi - þó ekki sé nema korter.
Vigtuðum okkur í morgun - það var hvorki fallegt né skemmtilegt sem sást á vigtinni en það stendur til bóta ekki satt?
Sjáum hvað setur - ætla að reyna að vera duglegri að blogga en undanfarna mánuði, kannski eru einhverjir sem enn nenna að kíkja hér inn
Hérinn
06. ágúst 2009 klukkan 22:23
Úff, búin að liggja heima í dag með ógeðis kvef og hausverk og ýmsa aðra verki, ég sem hélt að hálsbólgan sem ég vaknaði með á þriðjudag væri ekki neitt neitt. Fer ekki vel með mína geðheilsu að hanga svona heima undir sæng allan daginn!
Kosturinn kannski sá að það var akkúrat ekkert í ísskápnum - svo ég fitna allavega ekki á meðan :)
Stefnan var að fara í ræktina í hádeginu á morgun en ég er ekki alveg að sjá fyrir mér að það verði veruleiki miðað við hvernig heilsan er í augnablikinu.
Held ég fari bara að fara í háttinn í þeirri von að ég vakni eldhress í fyrramálið
Hérinn
03. ágúst 2009 klukkan 13:24
Svei mér þá ef hér er ekki bloggsíða sem ég ber víst ábyrgð á! Ansi langt síðan síðast :)
Svo sem ekki margt að gerast þessa dagana, restin af sumarfríinu verður talin í klukkustundum - alvara lífsins að taka við eftir alveg hreint ágætis sumarfrí. Búin að keyra yfir 5 þúsund kílómetra fram og aftur um landið í júní og júli, langt síðan ég hef þvælst svona mikið um.
Búin að gera dálítið af því að ganga í sumar - þó ekki eins mikið og planið var, en hvenær nær maður því svo sem! :) Ekki neinar erfiðar göngur samt, nokkrum sinnum á Úlfarsfellið, eitthvað uppí Heiðmörk og Egilsstaðaskógi. Mætti svona að meðaltali einu sinni í viku í ræktina seinni hluta maí og fyrri part júní svo ekki eru afrekin þar til að státa sig af!
En nú þarf að fara að koma þessu öllu saman í reglu, bara þrjár vikur þar til skólinn byrjar hjá stráknum og ég byrja að lesa fyrir próf og ég er nokkuð viss um að ég verð ónýt af að sitja svo dögum skiptir og lesa fyrir próf ef ég hreyfi mig ekki neitt.
Það vantar ekki að fyrirheitin eru fögur sem fyrri daginn! Vantar stundum bara aðeins uppá framkvæmdina
Hérinn
13. mars 2009 klukkan 01:26
Já, mér gekk bara alveg þokkalega í dag
hmmm, í dag er samt eiginlega orðið í gær því það er víst komið fram yfir miðnætti.
Mataræðið bara alveg ágætt, eina grófa samloku með grænmeti og smá osti í hádeginu og slatta af cherry tómötum, hakk með fullt af grænmeti og kjúklingabaunum útí og kotasælu með í kvöldmatinn og hellings brennsla við að æða hér eins og vitfirringur um íbúðina í tvo tíma að tína saman rusl og drasl, safna saman rykhnoðrum, ryksuga, setja í þvottavél og uppþvottavél, ganga frá þvotti og leirtaui og svo framvegis.
Hef trú á því að dagurinn á morgunn verði líka góður - vonandi meira að segja betri 
Góða nótt.
Hérinn
12. mars 2009 klukkan 10:22
Lét mig loksins hafa það og fór á vigtina í morgun - það var vægast sagt ekki skemmtilegt!!! Nú bara verður leiðin að liggja uppá við héðan í frá - eða niður á við réttara sagt.
Ætli mottóið verði ekki að hugsa um það sem ég læt ofan í mig - í stað þess að láta ofan í mig allt það sem ég hugsa um.
Borðaði eina speltbrauðsneið með mögrum osti og hálft epli í morgunmat - held það hafi verið ágætis byrjun á deginum.
Gamli: Gott ráð að taka niður gleraugun - í mínu tilviki myndi ég sennilega ekki hitta á vigtina gleraugnalaus og hvað þá sjá móta fyrir tölu 
Kveðja til ykkar sem enn nennið að kíkja hér inn.
Hérinn - sem er meira sprengilegur en spengilegur þessa dagana.
Hérinn
06. mars 2009 klukkan 00:26
Komst ekki í ræktina í gær vegna vinnu
en fer á morgun! 
Finnst einhvernvegin ekkert vera að gerast hjá mér þrátt fyrir að vera farin að hreyfa mig aftur - frekar að mér finnist ég vera að blása út !! Ekki gaman!
Þarf að fara að "feisa" vigtina svona hvað úr hverju.
Annars skellti ég mér nú bara á kaffihús og tónleika í kvöld - ekki oft sem ég fer á þvæling svona á virku kvöldi. Rosa gaman og góð tilbreyting frá að sitja heima :)
Farin að sofa, góða nótt!
Hérinn
27. febrúar 2009 klukkan 14:40
Fór í ræktina í gær og aftur í dag - frekar ánægð með mig sko 
Mjög svona gott/vont að finna vel fyrir öllum vöðvum við minnstu hreyfingu!
Mataræðið svona lala - bara venjulegur heimilismatur svo sem. Hef sleppt öllu sælgæti og kvöldsnakki og slíku. Borða morgun- hádegis- og kvöldmat og narta svo í ávexti svona inn á milli.
Sátt við lífið og tilveruna
Hérinn
25. febrúar 2009 klukkan 18:17
Ræktin í hádeginu og mataræðið meira að segja búið að vera bara nokkuð gott :) Batnandi fólki er best að lifa er það ekki?
Ætlaði í ræktina í gær líka en komst ekki vegna vinnu - reyni að komast í hádeginu á morgun. Þarf að ná mér í auka brennslu!!
Ekki farin að fara á vigtina neitt ennþá - þori því ekki
Geri það kannski í næstu viku.
ISF - það þýðir ekkert að kvarta bara yfir bloggleysi sko - verður líka að hrósa mér þegar ég loksins blogga og það meira að segja þrisvar í sömu vikunni!! hehehe
Hérinn